Competence+ D/I
Rafrænn námsvettvangur
Hæfniþróun í almenningssamgöngum til að styðja við fjölbreytileika og inngildingu
Velkomin á Competence+ D/I, stafrænan vettvang sem sameinar tvö evrópsk verkefni og hefur að geyma námsefni sem styður við faglega þróun þína í starfi.
Hugmyndafræði Competence+ D/I á rætur að rekja til tveggja samtengdra evrópskra verkefna: upphaflega verkefnisins Competences+ og framhaldsverkefnisins Competence D/I (fjölbreytileiki og inngilding). Á þessum sameiginlega vettvangi færðu aðgang að báðum verkefnum og tækifæri til að auka þekkingu þína og færni með því að nýta þér það efni og þau verkfæri sem boðið er upp á.
Sem kennari í starfsnámi hefst námsleið þín á því að skoða bókasafn kennarans, en þar þar getur þú aflað þér fræðilegrar þekkingar á þáttum og lykilhugtökum sem verkefnin byggja á, svo sem inngildingu, fjölbreytileika og annarri hegðunartengdri hæfni. Að þessu inngangsskeiði loknu heldur þú áfram í Vinnustofu um inngildingu og fjölbreytni, sem er fyrsta formlega námskeiðið í þessu námsferli.
Því næst heldur þú áfram í fjórar einingar til viðbótar, sem hver um sig eru hannaðar til að dýpka skilning þinn og veita þér hagnýt verkfæri til að styðja við nemendur á árangursríkan hátt. Með því að ljúka öllum fimm einingunum verður þú vel í stakk búin(n) til að skilja þarfir nemenda þinna, eiga virk og markviss samskipti við þá og styðja við nám þeirra, með þeim aðferðum og verkfærum sem við bjóðum upp á.
Þessi skipulagða námsleið gerir þér kleift að nálgast Competence+ á heildstæðan hátt, þar sem fræði verða að framkvæmd og þekking nýtist í verki.
Samstarfsaðilar






